Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24711
Mikil þörf er á matstæki hér á landi og í öðrum löndum sem metur tilfinninga- og hegðunarvanda leikskólabarna með áreiðanlegum og réttmætum hætti. Íslenski atferlislistinn CEAS (Children‘s Emotional Adjustment Scale) er nýtt matstæki sem greinir bæði veikleika og styrkleika í tilfinningaþroska barna. Spurningar listans meta hæfni barna til að þola og takast á við neikvæðar tilfinningar og meta sjálfstraust þeirra í félagslegum aðstæðum. Ný útgáfa atferlislistans CEAS (Children‘s Emotional Adjustment Scale) var prófuð hér í annað skipti fyrir börn á leikskólaaldri, þriggja til sex ára. Fyrri rannsókn greindi frá að CEAS listinn hefði skýra þáttabyggingu og viðunandi áreiðanleika en nauðsynlegt er að athuga stöðugleika þáttabyggingarinnar í sjálfstæðu og stærra úrtaki. Hér var rannsóknin endurtekin með stærra úrtaki. Atferlislisti fyrir styrk og vanda (SDQ; The Strengths and Difficulties Questionnaire) var notaður til samanburðar. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 401 mæður leikskólabarna á aldrinum þriggja til sex ára. Mæðurnar fengu könnunina senda með tölvupósti og svöruðu þær henni á netinu. Niðurstöður sýndu að atriði CEAS listans voru normaldreifð og innihéldu enga skekkju. Þáttagreining listans benti til þriggja þátta; skaplyndi, framfærni og geðstilling. Áreiðanleiki þáttanna var á bilinu 0,88-0,94. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að CEAS listinn fyrir börn á aldrinum þriggja til sex ára sé réttmætur og hægt sé að nota listann áfram í framtíðinni til þess að meta líðan leikskólabarna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS-Lokaverkefni-EiðurSteindórsson-Lokaútgáfa2.pdf | 392.25 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |