is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24781

Titill: 
  • Samspil grunnvatns og rennslis Tungnaár
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er fjallað um grunnvatn á vatnasviði Tungnaár og samspil þess við rennsli árinnar. Rennsli Tungnaár var greint með aðfallsgreiningu og athugað hvort mögulegt sé að leggja mat á grunnvatnsforða árinnar í rauntíma. Landsvirkjun hefur í mörg ár vaktað grunnvatnsstöðu á svæðinu og voru þær mælingar bornar saman við einangrað grunnrennsli Tungnaár. Niðurstöður sýndu að töluverð fylgni var við vatnshæð í Hraunvötnum og grunnvatn norðan þeirra sýndi meiri fylgni við Tungnaá heldur en við Þórisvatn. Þetta staðfestir áhrif grunnvatnsstrauma, austan og sunnan við Þórisvatn, á rennsli Tungnaár. Grunnvatn sýndi einnig góða fylgni við úrkomu á svæðinu á ársgrundvelli og grunnvatn austan Þórisvatn sýndi nokkra fylgni við jökulbráð af Tungnaárjökli. Aðfallsgreining á rennsli Tungnaár sýndi fram á hvernig afrennsli af vatnasviði Tungnaár er háttað og að áin sækir grunnvatn sitt í þrjá mismunandi grunnvatnsgeyma. Geymana þrjá er gengið á þegar rennsli árinnar er á bilinu 60-89 m3/s, 40-59 m3/s og 30-39 m3/s. Algengast var að áin sótti rennsli sitt í miðgeyminn og helming vatnsára voru 5,5% eða færri dagar með rennsli á bilinu 30-39 m3/s. Slæm vatnsár áttu það sameiginlegt að yfir veturinn var hlutfall daga á bilinu 30-39 m3/s mun hærra en venjulega. Með vöktun á rennsli Tungnaár, sérstaklega á lágrennsli yfir vetrartímann, er hægt að áætla hversu djúpt í grunnvatnsgeyminn áin þarf að sækja rennsli sitt og hversu vel staddur grunnvatnsforði árinnar er fyrir sumarið. Þar af leiðandi er hægt að taka upplýstari ákvörðun um raforkuframleiðslu og miðlun á vatnasviðinu áður en mikilvægast tími ársins til vatnssöfnunar gengur í garð.

  • Útdráttur er á ensku

    This study focuses on ground water in the Tungnaá river basin and its interaction with the flow of the river. The flow of Tungnaá river was analyzed using a master recession curve and whether it is possible to assess the groundwater reserves of the river at the current time. Landsvirkjun has for years monitored the groundwater in the area and that data was compared with measurements of the isolated base flow of Tungnaá river. Results showed a significant correlation with the water level in the Hraunvötn lakes and groundwater north of them showed greater compliance with Tungnaá river than with lake Þórisvatn. This
    confirms the impact of groundwater currents east and south of lake Þórisvatn on the flow of Tungnaá river. Groundwater also showed good correlation with the rainfall in the region on an annual basis and groundwater east of lake Þórisvatn showed some correlation with meltwater runoff from Tungnaárjökull glacier. The master recession curve analysis of the flow of Tungnaá river shows how the drainage of the river basin behaves and how the river gets its base flow from three different aquifers. The three aquifers drain when the flow is 60-89 m3 /s, 40-59 m3 /s and 30-39 m3 /s. The river typically gets if flow from the middle aquifer and half the of the years looked at had 5,5% or fewer days of flow in the range of 30-39 m 3 /s. Bad water years had it in common that during the winter, flow in the range of 30-39 m3 /s was proportionally a lot more frequent than normally. By monitoring the flow of Tungnaá river, especially during minimum flow periods in the winter, it is possible to estimate which aquifer is supplying the river with its base flow and the present status of the groundwater reserves of the river before entering into the summer. Consequently, it is possible make more informed decisions about electricity generation and transmission of the catchment before heading into the most important time of year for water collection.

Samþykkt: 
  • 31.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24781


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS verkefni_Snævarr Örn Georgsson_lokaútgáfa.pdf3.51 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman - vottorð.pdf98.25 kBLokaðurYfirlýsingPDF