Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24893
Hreppamyndunin liggur á milli Vestur- og Austurgosbeltisins og rétt norðan við Suðurlandsbrotabeltið sem tengir rekbeltin. Í mynduninni eru tvær kulnaðar meigineldstöðvar og önnur þeirra er Þjórsársdalseldstöðin sem var virk fyrir 1.6-2 milljónum árum. Eldstöðin var krýnd 6-8 km breiðri öskju og er mikið rofin af ísaldarjöklinum. Jarðlagasnið í Grjótárgljúfri, sem ganga upp í gegnum vestur barm öskjunnar sýna að staflinn samanstendur af basískum, ísúrum og súrum hraunlögum í bland við gjóskuríkt set sem ber ummerki öflugra basalt og rýólít sprengigosa. Bergfræðiathuganir sýna að kvikurnar sem mynduðu jarðlagasyrpuna í Grjótárgljúfri tilheyra milliröðinni og að þær voru samstofna. Að þessu leiti svipar gosbergi Þjórsárdalseldstöðvarinnar mest til Heklu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fjóla Sif yfirlýsing.pdf | 155.68 kB | Lokaður til...25.06.2136 | Yfirlýsing | ||
BS ritgerð Fjóla Sif.pdf | 2.59 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |