is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24984

Titill: 
  • Kennsla um auðlindir sjávar á Húsavík : námspakki fyrir unglingastig
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Markmið þess er að útbúa aðgengilegan námspakka fyrir kennara unglingastigs grunnskólans á Húsavík. Áhersla er lögð á sjálfbærni, sköpun og auðlindir sjávar og hvernig megi styrkja þessa þætti náms með því að sýna kennurum þá möguleika sem svæðið í kringum grunnskólann á Húsavík býður upp á og gera þeim undirbúning auðveldari. Verkefnið er hluti af framlagi Háskólans á Akureyri til CRISTAL-verkefnisins, sem snýst um að gera módel af samfélagi þar sem frumkvöðlamennt, tækninám, sjálfbærni og sköpun eru innleidd á öll skólastig.
    Lagður er fram námspakki í formi fimm daga þemaviku. Hæfniviðmið aðalnámskrár grunnskóla frá 2013 voru höfð til hliðsjónar við gerð námsmarkmiða námspakkans. Höfundar fóru á Húsavík og framkvæmdu þarfagreiningu með því að taka viðtal við samfélagsgreinakennara Borgarhólsskóla og leggja netkönnun fyrir úrtak nemenda á unglingastigi. Niðurstöður þarfagreiningarinnar leiddu í ljós að bæði kennari og nemendur eru á heildina litið ánægðir með kennsluna um auðlindir sjávar. Eini sameiginlegi þátturinn sem þátttakendur nefndu að bæta mætti, var að auka vægi verklegrar kennslu og nýtingar nærumhverfis skólans með útikennslu. Við gerð námspakkans var horft til þessara niðurstaðna og rík áhersla lögð á fjölbreyttar kennsluaðferðir, sérstaklega verklegar æfingar og útikennslu.
    Verkefninu fylgja glærusýningar, sniðmát kennsluáætlananna og gátlistar fyrir námsmat sem nýtast við kennslu á efninu. Það er von höfunda að námspakkann nýtist í grunnskólum landsins til eflingar auðlindakennslu.

  • Útdráttur er á ensku

    This project is a final assignment for a B.Ed.-degree within the Faculty of Education at the University of Akureyri. The aim of this project is to assemble a syllabus for the secondary school at Húsavík. Emphasis is put on sustainability, creativity and marine resources and how these factors can be strengthened, by pointing out to the teachers all the possibilities available in the close surroundings of the school, and to make the preparation easier. The project is a part of the University of Akureyri‘s contribution to the CRISTAL-project, which aims to make a model community where innovation, technology, sustainability and creativity are initiated at every level of education.
    The syllabus is based on a five-day theme-week. The instructional objectives of the syllabus are made based on the study assessments of the National Curriculum for Compulsory School of Iceland. The authors went to Húsavík to interview the teacher of social studies at Borgarhólsskóli and ask the student at secondary level to take an internet survey regarding the marine resources and teaching methods at the school. The results show that both the teachers and students are satisfied with the teaching methods but the only factor that could be improved is to increase practical training and outdoor learning. Those factors were taken into consideration in the making of the syllabus and emphasis was put on diverse methods of teaching, particularly practical training and ourdoor learning.
    With the project comes an addendum with teaching materials such as slide shows, syllabus template and templates for assessment. The authors hope that the syllable can be of use for educators in teaching about the marine resources.

Samþykkt: 
  • 6.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24984


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.Ed. Helga&Hrefna (2).pdf2.28 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna