is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25055

Titill: 
  • Upplifun landeigenda af göngufólki : á ómerktum gönguleiðum í Árnessýslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Gönguferðamennska hefur aukist nokkuð undanfarin ár og fjöldi þeirra sem halda í dagsferðir út frá höfuðborgarsvæðinu mikill. Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða viðhorf landeigenda í Árnessýslu til göngufólks.
    Rannsóknin var megindleg og var spurningalisti saminn og sendur út til landeigenda um alla sýsluna á rafrænu formi.
    Helstu niðurstöður úr rannsókninni eru þær að landeigendur eru ennþá nokkuð jákvæðir í garð göngufólks og því virðist þolmörkum ekki vera náð. Hins vegar er ákveðinn fjöldi landeigenda sem lítur neikvætt á þennan hóp og er vert að skoða þann hóp betur. Gagnlegt væri að gera eigindlega rannsókn til að komast betur að hvað veldur. Þá kom í ljós að fimmtungur svarenda var jákvæður fyrir því að koma upp þjónustu fyrir göngufólk á landi sínu. Það er merki um að þeir sjái tækifæri sem felast í þessum hópi ferðamanna.
    Með þessar upplýsingar í farteskinu væri áhugavert að bera saman landshlutana og gera svipaðar rannsóknir út um allt land, þá sérstaklega þau svæði sem eru næst Höfuðborgarsvæðinu.

  • Útdráttur er á ensku

    The main purpose of the thesis is to shed light on stakeholders’ encounters in undefined hiking trails in Arnessysla. Hiking tourism is a rapidly growing industry in Iceland and every day, a number of tourists go on hiking tours depart from Reykjavik.
    A quantitative approach was used to gather results using a questionnaire and was sent via email to landowners living near mountains with undefined hiking trails.
    The main findings suggest that the landowners in question are still fairly positive towards hikers indicating that carrying capacity has reached its limits. Nevertheless, not everyone feels that way and will require further studies, preferably with a qualitative approach. On the other hand, one in fifth was quite positive towards facilitating their land and were very receptive of any possibility concerning service to hikers.
    Considering these findings, a comparison of different areas in Iceland would certainly be interesting and also to execute similar research all over the country, especially areas near Reykjavik.

Samþykkt: 
  • 7.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25055


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-Finnur Hafliðason- Skemman.pdf1.11 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna