is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Auðlindadeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Auðlindadeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25094

Titill: 
  • “Sigurður dýralæknir” Hönnun á smáforriti byggðu á Sauðburðarkverinu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vanhöld skila sér sem beinn tekjumissir fyrir bændur. Lömb sem fæðast lifandi að vori skila sér ekki endilega til nytja að hausti en með réttri hirðingu bæði fyrir og eftir burð má hámarka líkurnar á því að lömb fæðist lifandi og að þau skili sér af fjalli og þannig auka arð búsins.
    Sjúkdómar, efnaskortseinkenni og önnur almenn afföll lamba og áa má fyrirbyggja að miklu leyti með því að vera eftirtektasamur og að leiðrétta vandamál helst áður en þau verða
    vandamál. Markmið þessa verkefnis er að hanna og setja upp uppflettismáforrit (App) fyrir snjallsíma eða spjaldtölvur sem er einfalt og auðvelt í notkun fyrir bændur við störf sín.
    Sauðburðarkver (1997) Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis er vel þekkt rit og finnst á flestum sauðfjárbúum. Ritið er komið nokkuð til ára sinna en heldur ávallt sínu gildi sem
    fræðslurit við hirðingu sauðfjár. Með aukinni tæknivæðingu í landbúnaði og nýliðun breytast kröfur til útgefenda og bækur eða bæklingar þykja óhentug til notkunar í útihúsum. Kröfur
    um hraðar og notendavænar lausnir eru framtíðin fyrir fræðslu og upplýsingaöflun í hvaða iðnaði sem er.
    Til að kanna álit starfandi sauðfjárbænda var gerð óformleg könnun með frjálsri þátttöku þar sem 263 einstaklingar svöruðu. Þar var spurt almennt um búin, aðgengi þeirra að
    dýralæknaþjónustu og nýtingu þeirra á fræðsluefni við þeirra störf. Flestir bændur viðurkenndu að nýta sér fræðsluefni af einhverju tagi við störf sín, en einnig að tölvutækt
    form myndi henta þeim best til notkunar.
    Forrit sem þetta bíður uppá möguleika á auknum hraða við upplýsingaöflun.
    Fræðsluefni á borð við burðarleiðbeiningar, lyfjaleiðbeiningar og upplýsingar um sjúkdóma og sýkingar getur verið torskilið og erfitt til yfirlestrar. Með því að setja efnið upp á
    skipulegan hátt á stafrænu formi er það gert aðgengilegra fyrir notendur. Með þessu forriti er vonin að það nýtist bændum við vinnu sína, auðveldi upplýsingaöflun þeirra og dragi úr
    vanhöldum að einhverju leyti.

Samþykkt: 
  • 7.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25094


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ÞorgerðurBjarnadóttir_BSritgerð2016.pdf56.37 MBOpinnPDFSkoða/Opna