is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Umhverfisdeild (2005-2016) > Meistaraprófsritgerðir - Umhverfisdeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25098

Titill: 
  • Verðmæti Laugardalsins Hefur skipulag áhrif á fasteignaverð
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verðmæti útivistarsvæða hefur ekki verið mikið rannsakað hér á landi. Í þessari rannsókn er verðmæti útivistarsvæðisins í Laugardal Reykjavík skoðað út frá fasteignaverði með óbeinu verðmati (e. Hedonic price technique). Metið er hvort útivistarsvæðið sé áhrifaþáttur í fasteignaverði eða sóun á góðu byggingalandi. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir byggingarlóðum verið talsvert meiri en framboð. Það er því mikilvægt fyrir skipulagsfræðinga að átta sig á verðmætum útivistarsvæða við skipulagsgerð, einnig að hægt sé að benda á hagræn rök fyrir tilurð vandaðra útivistarsvæða.
    Ekki er mikið af gögnum hér á landi, sem skipulagsfræðingar geta stuðst við í skipulagsgerð, sem staðfesta hagræn áhrif útivistarsvæða. Gögn er snúa að fasteignamarkaði eru hinsvegar aðgengileg, safnað saman af opinberum aðila, Þjóðskrá Íslands, og samantektir birtar á vefsíðu stofnunarinnar.
    I þessari rannsókn er skoðað hvort fasteignir í fjölbýli í nánd við útivistarsvæðið í Laugardalnum eru hærra verðlagðar en þær sem fjær standa. Mat er lagt á hvort merkjanlegur munur er á verði fasteignanna eftir því hversu nálægt þær eru útivistarsvæðinu í Laugardalnum, mælt í metrum. Eignunum er skipt upp í tvo flokka, annarsvegar eignir innan 200 metra frá jaðri og hinsvegar eignir utan 200 metra frá jaðri. Einnig er mat lagt á hvort útsýni, þ.e. hvort hægt er að horfa úr einhverju stað fasteignarinnar yfir Laugardalinn, hefur áhrif á verð. Með niðurstöðum rannsóknarinnar, verður hægt með þessum hætti að leggja mat á peningalegt verðmæti Laugardalsins í Reykjavík.

  • Útdráttur er á ensku

    The value of urban green areas has not been extensively studied in Iceland. In this study, the value of the urban green area in Laugardalur Reykjavik will be viewed and valued in regards of housing prices using Hedonic price technique and questions asked regardin if it is a factor in housing prices or a waste of good building land. In recent years the demand for building sites has been higher than supply. It is important for planners to realize the value of urban green aresa, also to be able to point to the economic arguments for the creation of quality urban green areas.
    Litle data is available that planners in Iceland may use in planning, establishing the economic impact of urban green areas. Data relating to the real estate market on the other hand is accessible, collected by a public Agency, the National Registry, and summaries published on the Agency website.
    The aim of this study is to evaluate if apartments near the urban green area Laugardalur in Reykjavik are higher priced than those further away and if there will be a noticable difference in the value of the properties by how close they are to Laugardalur Reykjavik, measured in meters. The assets will be divided into two categories, properties within 200 meters of the perimeter and on the other properties beyond 200 meters from the peremeter. Also if view, i.e. is it possible to watch from any point of the property over Laugardalur, is affecting the price. With the results of the study, it will be possible to assess the monetary value of Laugardalur in Reykjavik.

Samþykkt: 
  • 7.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25098


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MSc Brynjar Þór lokaverkefni.pdf4.66 MBOpinnPDFSkoða/Opna