Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25154
Markmið þessa verkefnis er að rýna nokkuð vel í verðtrygginguna og sögu hennar hér á landi og aðdraganda hennar. Farið verður yfir kosti og galla óverðtryggðra og verðtryggðra lána og rýnt í það í hverju munurinn á þeim felst. Umræður er varða
verðtrygginguna hafa stigvaxið og þá sérstaklega eftir hrun íslenska fjármálakerfisins árið 2008. Misjafnar skoðanir fólks eru á því hvort eigi að afnema verðtrygginguna eða
ekki og er hún mikið hitamál í þjóðfélaginu í dag og sér maður reglulega pistla á veraldarvefnum eða í fréttum tengt verðtryggingu þar sem fólk segir sitt álit á henni.
Einnig verður farið yfir verðbólgu og þróun hennar á Íslandi og verðtryggingu síðustu ára, vaxtamál verða tekin fyrir og farið verður yfir peningamál á Íslandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
SolrunPerla_BS_Lokaverk.pdf | 1.94 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |