is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25224

Titill: 
  • Allir geta eitthvað, enginn getur allt! : viðhorf nemenda og foreldra barna í 8. bekk Borgarhólsskóla til námsefnis og kennslu
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á Íslandi ríkir menntastefna sem kveður á um að öll börn hafi sama rétt til náms í sínum heimaskóla óháð getu og færni og njóti sömu eða sambærilegrar menntunnar í umhverfi sem veitir þeim öryggi og hlýju. Þessi menntastefna hefur verið bundin í lögum frá árinu 2008 á Íslandi en hefur hinsvegar verið töluvert lengur í mótun. Menntastefnan kallast Skóli án aðgreiningar og segir til um að skólar og starfsmönnum þeirra beri skylda til þess að koma til móts við misjafnar þarfir nemenda. Skóli án aðgreiningar er skóli sem byggir á manngildi, lýðræði og félagslegu réttlæti. Fjölbreytileikinn á að njóta sín með einstaklingsmiðuðu námi þar sem markmiðið er að sníða stakk eftir vexti.
    Þessi ritgerð byggir á rannsókn á viðhorfum nemenda einnar bekkjardeildar í Borgarhólsskóla á Húsavík og foreldra þeirra til námsefnis og kennslu. Kannað var hvort að nemendur og foreldrar þeirra telji að námsefnið sem unnið er með sé við hæfi, sé þeim erfitt eða auðvelt. Rannsóknin er megindleg þversniðsrannsókn sem byggir á hentugleikaúrtaki. Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í 8. bekk Borgarhólsskóla og foreldra þeirra. Niðurstöður hans voru um margt áhugaverðar og sýna heilt yfir jákvætt viðhorf til námsefnis og kennslu. Nemendur sem og foreldrar töldu hinsvegar sig og börnin sín ráða við erfiðara námsefni í einstaka fögum sem og að þurfa auðveldara námsefni. Einnig sýndu niðurstöður að námsaðlögun ætti sér stað að einhverju leyti, bæði sem stuðningur inni í bekk en einnig í formi sérkennslu í öðru rými en almenn bekkjarkennsla fór fram.

  • Útdráttur er á ensku

    In Iceland there is educational policy wich inquiers that all children, regardless of ability and skills, have the same right to education in their local schools. Enjoy the same or equival education in an environment that provides them security and warmth. This educational policy has been statutory since 2008 in Iceland, however, it has been considerably longer in shaping. This educational policy is called Inclusive education and determines that schools and their employees are required to cater to the different needs of the children who study there. Inclusive education is education that is based on human dignity, democracy and social justice. Diversity should flourish with individualized learning which aims to fit the needs of every child.
    This essay is based on a study on opinion of students in one classroom in Borgarhólsskóli Húsavík and their parents for study materials and instructions. It is whether the students and their parents believe that the material, being processed, is appropriate to them, difficult or easy. The study is a quantitative cross-sectional study based on convenience sampling. The questionnaire where presented to students in 8th grade of Borgarhólsskóli and their parents. The results were interesting in many ways and show, overall, positive opinion to study materials and instructions. However, students and their parents believed that themselves or their children could cope with more difficult material, in some subjects, as having easier. The results also showed that differentiation took place in some way, both as support within the classroom but also in the form of special education in other areas than the general class instruction took place.

Samþykkt: 
  • 15.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25224


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistaraprófsverkefni 2016 Kiddý Hörn Ásgeirsdóttir skemman.pdf1.21 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna