Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25398
Greiðsluvilji erlendra ferðamanna hefur lítið verið rannsakaður á Íslandi.
Rannsakendur fundu greiðsluvilja erlendra ferðamanna við Geysi með skilyrtu verðmætamati. Niðurstöður rannsóknar benda til þess að almennt séu þeir tilbúnir að greiða fyrir það að skoða náttúruauðlindir á Íslandi. Með skilyrtu verðmætamati fundu rannsakendur meðalgreiðsluvilja erlendra ferðamanna við Geysi sem reyndist vera 850 krónur. Fjölgun ferðamanna á Íslandi hefur leitt til mikillar umræðu um hvaða
leiðir séu hagkvæmastar í gjaldtöku fyrir Ísland með hagsmuni allra hagsmunaaðila að leiðarljósi. Markmið rannsóknarinnar var að finna ákjósanlegustu leiðir í gjaldtöku og kanna hver greiðsluvilji erlendra ferðamanna er á Íslandi. Blönduð leið í gjaldtöku
telja rannsakendur bestu lausnina. Niðurstöður rannsóknar sýna að greiðsluvilji meirihluta þátttakenda rannsóknarinnar er jákvæður og samband er milli greiðsluvilja
og menntunarstigs.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hagræn áhrif gjaldtöku á ferðamannastöðum og greiðsluvilji erlendra ferðamanna á íslenskum náttúruauðlindum.pdf | 4.56 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |