is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2541

Titill: 
  • Mannauðsstjórnun, þjálfun og starfsþróun. Tengsl við framleiðni vinnuafls í íslenskum fyrirtækjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verða tengsl mannauðsstjórnunar og þjálfunar og starfsþróunar við framleiðni vinnuafls skoðuð. Tilgáturnar eru tvær. Annars vegar að mannauðsstjórnun hafi jákvæð tengsl við framleiðni vinnuafls, og hins vegar að fjárfesting í þjálfun og starfsþróun hafi jákvæð tengsl við framleiðni vinnuafls. Fjallað er um stefnumiðaða stjórnun, mannauðsstjórnun og stefnumiðaða mannauðsstjórnun. Þá er farið yfir kenningar um þjálfun og starfsþróun með ítarlegum hætti.
    Gögnin sem notuð eru, eru fengin úr póstkönnun sem ParX viðskiptaráðgjöf IBM lagði fyrir 192 stærstu fyrirtæki Íslands í maí 2007. 62 fyrirtæki svöruðu könnuninni, sem gerir 32,3% svarhlutfall.
    Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að mannauðsstjórnun og þjálfun og starfsþróun hafa bæði jákvæð tengsl við framleiðni vinnuafls, og eru því tilgáturnar tvær sem lagðar voru fram studdar. Af þessum niðurstöðum má ráða að mikilvægur þáttur til að auka framleiðni vinnuafls er að fjárfesta í þjálfun og starfsþróun sem og öðrum aðferðum mannauðsstjórnunar.

Samþykkt: 
  • 11.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2541


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_fixed.pdf37.15 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
pd_fixed.pdf186.4 kBOpinnRitgerðPDFSkoða/Opna