is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2542

Titill: 
  • Valdakerfið á Íslandi í ljósi kenninga um margræði og kjarnræði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður gerð tilraun til þess að skoða valdakerfið á Íslandi frá 2000
    – 2009 í ljósi kenninga í stjórnmálafræði um margræði og kjarnræði. Að lokum verður svo gerð tilraun til þess að komast að niðurstöðu um það hvort leita megi skýringa á því sem hér hefur gerst í eðli valdakerfisins. Til þess að skoða hvort
    þetta sé raunin verður fjallað um valdakerfið á Íslandi frá 2000 – 2009. Þar verður staða helstu eftirlits- og aðhaldsstofnunum metin, enda fara þær með það hlutverk að gæta hagsmuna almennings gagnvart ríkisvaldinu. Þetta eru stofnanir eins og dómstólar, ríkisendurskoðun og umboðsmaður Alþingis auki þess sem fjallað
    verður um Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka. Einnig verður vikið að fjölmiðlum og
    eftirlitshlutverki þeirra.
    Einnig verða þrjár veigamiklar ákvarðanir skoðaðar, en bæði margræðis og
    kjarnræðiskenningar eru sammála um að ákvarðanir skipti máli þegar valdakerfi er
    skoðað.
    Þessar ákvarðanir eru: einkavæðing ríkisbankanna 1997 - 2003, stuðningurinn
    við innrásina í Írak 2003 og synjun forseta á því að veita fjölmiðlafrumvarpinu
    staðfestingu 2004.
    Hér hefur verið komið á stofnannakerfi sem hefði átt að styrkja margræði og
    riðja kjarnræði úr vegi, en vanþróun lýðræðis hefur meðal annars haft það í för
    með sér að þessi þróun er ekki eins skýr og ætla mætti.

Samþykkt: 
  • 11.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2542


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Valdakerfipd_fixed.pdf369.8 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna