Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25545
Í þessari ritgerð var leitast við að svara hvaða þættir skipta máli og ber að taka tillit til við gerð afreksstefnu fyrir Lyftingasamband Íslands og lyftingafélag. Afreksstefnan ætti snúast um það að hafa sem mesta stjórn á ytri þáttum og búa til sem best umhverfi fyrir íþróttamanninn.
Fjallað var um reglur í ólympískum lyftingum og sögu íþróttarinnar,
sem og hvernig Ísland stendur á heimsvísu. Einnig var fjallað um hvað
það þýðir að vera afreksíþróttamaður og hvaða eiginleikum slíkur
íþróttamaður þarf að vera gæddur og hvernig hægt sé að skapa sem
best umhverfi fyrir hann til þess að ná árangri. Fjallað var um mikilvægi markmiðasetningar og mismunandi tegundir markmiða. Búið var til plakat með markmiðastiga. Markmiðastiginn hjálpar íþróttamönnum
að sjá hvar þeir standa miðað við aðra, átta sig á veikleikum sínum og
styrkleikum og hjálpar þeim við markmiðasetningu. Gerð var
þarfagreining á íþróttinni og útbúin viðmið fyrir styrk á hverju stigi í
markmiðastiganum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bsc-Lokaverkefni-Árni-Freyr-variðPDF.pdf | 949.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |