Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2562
Þátttaka kvenna í atvinnulífinu hér á landi í tengslanetum kvenna hefur aukist mikið
síðastliðin tíu ár. Þessar konur eru flestar ýmist í stjórnendastöðum hjá fyrirtækjum
eða stjórnendur sinna eigin fyrirtækja. Tengslanetin hafa ólík markmið, hlutverk og
höfða ef til vill til ólíkra kvennahópa. Konum í stjórnunarstörfum fyrirtækja hefur
fjölgað undanfarna áratugi. Rannsóknir og reynsla hafa hins vegar sýnt að konur eiga
erfiðara með en karlar að fá æðstu stjórnendastörfin. Hið svokallaða „glerþak“ heftir
framgang þeirra. Konur hafa hin síðari ár þrýst á að þeirra hlutur vaxi meira í
framtíðinni á þessu sviði og fleiri sæti verði til reiðu fyrir þær í stjórnum fyrirtækja.
Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að almenn jákvæð skynjun viðmælenda er af
veru þeirra í tengslanetum. Þær njóta ávinnings á margan hátt; í formi stuðnings,
fræðslu, hvatningar og jafnvel í auknum tækifærum. Síðast en ekki síst kynnast þær
konum sem hafa ólíka hæfni og reynslu sem veitir þeim nýja sýn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
finu_Valgerdur_Johannesdottir_fixed.pdf | 455.64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |