Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2565
Rannsóknin er BA-ritgerð í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Notuð var eigindleg aðferðafræði þar sem tekin voru opin viðtöl við tíu konur og
gerðar tvær þátttökuathuganir. Skoðuð var upplifun kvenna í háskólanámi út frá
samþættingu náms og fjölskyldulífs. Sérstök áhersla var lögð á aðstæður mæðra sem
glíma oft á tíðum við margþætt hlutverk. Menntun kvenna var skoðuð í sögulegu
samhengi og því velt upp hvort jafnrétti hafi náðst hvað varðar umönnun barna og
rekstur heimilis. Rannsóknin sýnir að aðgengi kvennanna að námi hefur batnað,
jafnrétti hefur enn ekki náðst og mikil togstreita myndast á milli heimilislífs og náms.
Greinilegt er að það þarf að huga vel að þessum hópi með tilliti til sveigjanleika í
námi og góðra upplýsinga í upphafi náms.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
fs_fixed.pdf | 471.71 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |