is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2567

Titill: 
  • Stjórnun og upplýsingamiðlun á áfallatímum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er áföll, áfallastjórnun og upplýsingamiðlun á áfallatíma. Flestar skipulagsheildir geta búist við því að verða fyrir áfalli. Ætlunin er með ritgerðinni að stuðla að auknum skilningi og þekkingu á hugtakinu áfallastjórnun í skipulagsheildum.
    Ritgerðinni er skipt í tvo hluta. Sá fyrri er fræðilegur þar sem farið er yfir hugtök tengd áfallastjórnun. Í síðari hlutanum er gerð rannsókn þar sem rannsökuð voru hátt í 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi m.t.t. áfallastjórnunar. Rannsóknin byggir á megindlegri rannsóknarhefð. Sendir voru út spurningalistar á netföng til stjórnenda 264 stærstu fyrirtækja á Íslandi á árinu 2007 samkvæmt tímaritinu Frjálsri verslun. Alls svöruðu 129 spurningarlistanum og var svarhlutfall því tæp 49%.
    Markmið rannsóknarinnar var að fá eins skýra mynd og hægt var um hvort áfallastjórnun væri beitt í stærstu fyrirtækjum á Íslandi og hvort til sé áfallaáætlun í þessum fyrirtækjum. Kannað var hvert viðhorf svarenda var til áfallastjórnunar, hvort þátttakendur teldu nauðsynlegt að auka þekkingu um áfallastjórnun í fyrirtækjunum og hvort til staðar væri áfallateymi í fyrirtækjunum.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að flestir töldu fyrirtæki sitt hafa orðið fyrir áfalli á síðustu fimm árum og margir töldu líklegt að orðið gæti áfall í fyrirtækjum þeirra á næstu fimm árum. Um 28% fyrirtækja hafa áfallaáætlun og um þriðjungur fyrirtækja segist hafa áfallateymi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrirfram ákveðinn talsmaður vegna áfalla er oftast framkvæmdastjóri. Stjórnendur í fyrirtækjunum telja þörf á að hafa áfallaáætlun og yfir helmingur þátttakenda telur nauðsynlegt að auka þekkingu um áfallastjórnun.

Samþykkt: 
  • 11.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2567


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
KristinnJonBjarnason_fixed.pdf1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna