Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25789
Tónlist í leikskólastarfi er viðfangsefni þessarar lokaritgerðar sem er verkefni til B.Ed- prófs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Unnið verður út frá fjölgreindarkenningu Howards Gardners og er tilgangur verkefnisins útskýra hvernig hægt er að vinna með tónlist í leikskólastarfi út frá kenningu hans. Byrjað er á að fjalla um greindir fjölgreindar- kenningarinnar og svo hlutverk kennarans og mikilvægi tónlistarstarfs í því samhengi. Gagna var aflað í gegnum fræðilegt efni sem höfundur komst yfir í bókum, greinum og á veraldarvefnum. Meðfylgjandi greinagerðinni er hugmyndabanki sem höfundur ritgerðar hefur tekið saman og telur að geti nýst vel til tónlistarstarfs í leikskóla. Það er óhætt að segja að áhrif tónlistar á okkur sem einstaklinga séu ótvíræð og að mati höfundar er hægt að nýta hana á margvíslegan hátt í leikskólastarfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni-skil.pdf | 361.38 kB | Lokaður til...30.05.2040 | Greinargerð | ||
Hugmyndabanki - skil.pdf | 387.41 kB | Lokaður til...30.05.2040 | Fylgiskjöl | ||
Yfirlýsing_Bergþóra_Fanney_Einarsdóttir.pdf | 106.86 kB | Lokaður | Yfirlýsing |