Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25837
Gerð er grein fyrir hvernig kennarar geta nýtt upplýsingar um forhugmyndir nemenda á miðstigi grunnskóla um mannslíkamann í þeim tilgangi að bæta nám og kennslu. Fjallað er um hvað fram hefur komið í rannsóknum í náttúrufræðikennslu um forhugmyndir barna og viðfangsefnið tengt við námskenningar fræðimannanna Piaget og Vygotsky. Í Aðalnámskrá grunnskóla kemur fram mikilvægi kennslu um mannslíkamann og að kynnast forhugmyndum nemenda. Megininntak ritgerðarinnar eru rannsóknir um hugmyndir nemenda á miðstigi um mannslíkamann, einkum hjarta- og æðakerfi og meltingarkerfi. Sagt er frá aðferðum til að kynnast hugmyndum nemenda um mannslíkamann, þær geta verið teikningar, hugtakakort og hugtakamyndir. Til umræðu eru kennsluhugmyndir sem byggja á fyrri þekkingu nemenda, gagnast fjölbreyttum hópi og þar sem upplýsingatækni er nýtt. Í kjölfarið er viðeigandi námsmat sett fram sem byggir að miklum hluta á leiðsagnarmati.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forhugmyndir um mannslíkamann - B.Ed. ritgerð.pdf | 905.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 1.75 MB | Lokaður | Yfirlýsing |