Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2588
Í þessu rannsóknarverkefni er frístundalestur ungmenna og bókaval þeirra tekið til skoðunar. Gögnin sem stuðst er við koma úr rannsóknarbálkinum Börn og sjónvarp á Íslandi sem er langtímarannsókn sem á upphaf sitt að rekja til ársins 1968. Notuð eru gögn úr könnunum áranna 1997 og 2003. Helstu niðurstöður benda til þess að frístundalestur barna og unglinga sé á undanhaldi og að stúlkur lesi meira en drengir. Þrátt fyrir að færri ungmenni séu að lesa í dag virðast þau lesa fleiri blaðsíður. Eins má nefna það að þau börn sem eru með sjónvarp eða heimilistölvu í herbergi sínu eða eiga slík tæki eru líklegri til að lesa ekki. Einnig benda niðurstöður til þess að þau börn sem hafa jákvætt viðhorf gagnvart skóla séu líklegri til að lesa í frítíma sínum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_ValgerdurKristjans_fixed.pdf | 656 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |