is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2589

Titill: 
  • Gjaldeyriskreppur: Lærdómur fyrir Ísland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Íslenska hagkerfið lenti í banka- og gjaldeyriskreppu á árinu 2008, en íslenska krónan
    veiktist um 80% á árinu. Kreppunni svipar á margan hátt til gjaldeyriskreppunnar í
    Mexíkó árið 1994 og fjármálakreppunnar sem reið yfir mörg lönd Austur-Asíu árið
    1997. Sameiginlegir orsakavaldar eru mikill viðskiptahalli, vöxtur í innstreymi erlends
    fjármagns og útlánaaukning bankakerfisins. Gjaldeyrisforði þessara landa var einnig
    lítill miðað við Greenspan-Guidotti regluna. Háir vextir og jákvæðar hagvaxtarhorfur
    voru meðal hvata erlendra fjárfesta sem lánuðu til fjármálastofnana viðkomandi landa
    með tilheyrandi útlánaaukningu. Áhrifin voru sjáanleg á hlutabréfa- og
    fasteignamörkuðum og eignabóla myndaðist. Að lokum leiddi mikið ójafnvægi og
    óvissa til þess að erlendir fjárfestar kipptu að sér höndum með þeim afleiðingum að
    framboð erlends lánsfjármagns dróst skyndilega saman. Ójafnvægi skapaðist á
    gjaldeyrismarkaði og gjaldeyriskreppa varð raunin. Á Íslandi voru bankakreppan og
    veiking krónunnar samofin í aðdraganda hrunsins.

Samþykkt: 
  • 12.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2589


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed[1].pdf696.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna