is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25934

Titill: 
  • Vernd grundvallarréttinda á Evrópska efnahagssvæðinu
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Evrópska efnahagssvæðið hvílir á tveggja stoða kerfi og er meginmarkið samningsins að skapa einsleitt efnahagssvæði þar sem sambærilegar reglur gilda. Innan ESB-stoðar EES er grundvallarréttindum veitt umfangsmikil vernd sem lögfest er í 6. gr. SESB. Þá var Réttindaskrá ESB lögfest með Lissabon sáttmálanum og henni skipaður sess við hlið stofnsáttmála Evrópusambandsins og er hún því jafnrétthá þeim. Í EES-samningnum er hins vegar ekki að finna ákvæði sem vísar almennt til grundvallarréttinda. Verður með ritgerðinni leitast við að svara því hvort reglur um vernd grundvallarréttinda séu hluti af EES-rétti, hvaða reglur gilda um vernd grundvallarréttinda í EES-rétti og hvort grundvallarréttindum sé veitt sambærileg vernd innan Evrópska efnahagssvæðisins alls.
    Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að reglur um vernd grundvallarréttinda séu til staðar í EES-rétti og þær grundvallist á óskráðum meginreglum sem EFTA-dómstóllinn hefur mótað í dómaframkvæmd. Þá er talið að einsleitni ríki á Evrópska efnahagssvæðinu þegar kemur að vernd grundvallarréttinda.

Samþykkt: 
  • 5.9.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25934


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vernd grundvallarréttinda á Evrópska efnahagssvæðinu.pdf744.75 kBLokaður til...01.09.2116HeildartextiPDF
Yfirlýsing.pdf553.51 kBLokaðurYfirlýsingPDF