Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2604
Í ritgerðinni verður fjallað um Pietà eftir Michelangelo Buonarroti. Verkið er
staðsett í Vatíkaninu. Til þess að hægt sé að greina verkið, verður fyrst litið inní sögulegt samhengi, en Michelangelo er einn af meisturum Endurreisnartímabilsins. Endurreisnin var merkilegt tímabil í listasögunni og þá sérstaklega á Ítalíu. Þar nutu ungir listamenn aðstoðar frá ríkustu fjölskyldunum og fengu tækifæri til að kynnast gömlum verkum í görðunum hjá
Medici fjölskyldunni. Fornmenning hafði mikil áhrif á tíma endurreisnarinnar og margir listamenn náðu sér í innblástur frá fyrri tímum. Michelangelo var einn af þeim sem fékk inngöngu í svokallaða akademíu í görðum Medici fjölskyldunnar, þar sem áhugi hans á höggmyndalist vaknaði.
Michelangelo skildi eftir sig fjölmörg meistaraverk, bæði í Flórens og Róm sem
áhugavert er að skoða og fræðast um. Nefnd verða nokkur dæmi um þessi verk en þó verður
aðallega fjallað um styttuna Pietà. Við greiningu verskins verður notast við íkónografiska greiningaraðferð eftir Edwin Panofskys, en hann setti fram kenningu um það hvernig hægt er að greina verk þremur skrefum. Hann taldi nauðsynlegt að horfa á sérhvert smáatriði í verkinu til að hægt væri að lesa raunverulega merkingu verksins. Einnig er sögulega samhengið og bakgrunnur listmannsins mikilvægur til að hægt sé að skilja efnisvalið og framsetninguna.
Að lokum verður Pietà borin saman við önnur verk, með sama myndefnið, bæði það
sem var gert fyrir tíma Michelangelo og eftir að hann bjó til verkið Pietà.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Final_fixed.pdf | 2.96 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |