is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26065

Titill: 
  • Viðhorf íslenskra karla til kvenstjórnenda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á síðustu árum og áratugum hefur þátttaka kvenna í stjórnunarstörfum verið töluvert í umræðunni og enn í dag heyrast af og til raddir sem segja að konum sé meinaður aðgangur að stjórnunarstörfum eða þær ekki metnar að verðleikum. Út í heimi hafa verið settar fram ýmsar kenningar um það hvers vegna konur eigi erfiðara með að koma sér áfram upp metorðastigann í stjórnunarstöður og einnig er til fjölmargt efni þar sem lagt er mat á hversu hæfir stjórnendur þær séu. Lítið hefur verið skrifað á Íslandi um hvernig viðhorfum kvenstjórnendur hér á landi mæti og því erfitt að gera annað en að áætla að staðan sé svipuð hér og úti í heimi.
    Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvert viðhorf karla á Íslandi væri til kvenstjórnenda. Miklar breytingar hafa orðið á viðhorfum til kvenna í stjórnunar- og áhrifastöðum undanfarna áratugi og því forvitnilegt að fá sýn á hvað íslenskum karlmönnum finnst um þær og stjórnunarhætti þeirra. Framkvæmd var megindleg rannsókn með spurningalista sem svarað var á netinu. Þátttakendur voru 312 talsins og höfðu allir unnið fyrir kvenstjórnanda á einhverjum tímapunkti á starfsferli sínum og svara út frá eigin reynslu.
    Niðurstöður rannsóknar sýndu að almennt er viðhorf karla á Íslandi mjög gott í garð þeirra kvenstjórnenda sem þeir höfðu starfað fyrir. Þeir telja sig í flestum tilfellum vera metna að verðleikum og að þátttaka þeirra og gildi séu virt og vel metin af kvenstjórnandanum sem þeir starfa fyrir.

  • Útdráttur er á ensku

    In the more recent years and decades, the participation of women in management has been in the spotlight, and still today we hear about how women are blocked from gaining managerial positions or that they are not valued for their worth. Many theories have been published to try and shed some light on why women face challenges when trying to climb the corporate ladder, there is also plenty of material out there that tries to establish how effective they are as managers. In Iceland there is little research material on this topic and therefore it is only natural to assume that the status for these women in management is similar here to the rest of the world.
    The objective of this study was to get a males perspective on how they view females in management. Great changes in perception have taken place towards women in management over the last few decades and therefore it is interesting to get an insight into how Icelandic men feel towards them and their leadership abilities. A quantitative study was conducted by means of an online questionnaire. In total there were 312 participants that all have at some stage in their career worked for a female manager so they were able to use their own experiences to answer the questionnaire.
    The results of the study showed that in general the attitude of men in Iceland is very good towards the female managers they have experience working with. The participants in most cases believe that their participation and values are respected and appreciated by the female managers they work for.

Samþykkt: 
  • 12.9.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26065


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS ritgerð Iris Osk Valthorsdottir.pdf5.5 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman yfirlýsing.pdf437 kBLokaðurPDF