Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26282
Í þessari ritgerð leitast höfundur við að varpa ljósi á innreið spunahópsins Improv Ísland í íslenskt leikhúslíf.
Í fyrri hluta verður fjallað almennt um spunaformið Haraldinn, uppruna spunasamfélagsins Upright Citizens Brigade í Bandaríkjunum (sem er fyrirmynd hópsins) og hvernig langspunaaðferðin fluttist þaðan til Íslands. Í seinni hluta verða móttökur spunanámskeiðanna hjá Improv Ísland kannaðar og útbreiðsla, viðhorf nemenda til námskeiðanna sem þeir hafa sótt og áhrif sem þeir telja sig hafa orðið fyrir á námskeiðunum. Spunasamfélagið á Íslandi verður skoðað innan frá og fjallað um þann margvíslega persónulega- og faglega ávinning sem hlýst af spunaiðkun.
Einnig verða möguleikarnir sem þessi nýja og óformlega tegund af leikhúsmenntun býður upp á fyrir íslenskt samfélag skoðaðir. Er spunaleikarinn ný tegund af listamanni sem gæti haft uppbyggileg áhrif á landslag grínmenningar á Íslandi?
Ritgerðin byggir að mestu leyti á viðtölum höfundar við aðstandendur Improv Ísland.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAH2016.pdf | 297.63 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |