is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26326

Titill: 
  • Lilja og Kári : handrit að barnabók sem ætlað er að stuðla að áhuga barna á náttúrunni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefnið samanstendur af barnabókinni Lilja og Kári og fræðilegri greinargerð. Markmið bókarinnar er að auka áhuga barna og foreldra á að verja tíma úti í náttúrunni. Með greinargerð þessari vil ég rökstyðja hvers vegna þetta málefni er mikilvægt og hvers vegna barnabók var talin vænleg leið til að hafa áhrif á viðhorf barna. Rannsóknir sýna að frjáls leikur og útivera barna hefur minnkað svo um munar og þau eru sífellt að fjarlægjast náttúruna, á sama tíma og þekking okkar á mikilvægi náttúrunnar fyrir þroska og heilsu barna er að aukast. Jafnframt hefur sá tími sem varið er í náttúrunni verið tengdur umhyggju og virðingu fyrir henni, sem er nauðsynlegur grunnur þess að kynslóðir framtíðarinnar hugsi vel um náttúruna. Rannsóknir sýna að barnabækur eru öflugur miðill í félagsmótun barna og því góð leið til að hafa áhrif á skoðanir og viðhorf þeirra. Bækur eru auk þess vel til þess fallnar að vekja áhuga og umræður á hinum ýmsu málefnum. Handrit að bókinni Lilja og Kári (í fylgiskjali) er skrifað með þessi fræði að leiðarljósi og talið er líklegt að bókin muni hafa jákvæð áhrif á börn og sýn þeirra á náttúruna.

Samþykkt: 
  • 31.10.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26326


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
PálaMargrét-Lilja&Kári-Greinargerð.pdf1.03 MBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
PálaMargrét-Lilja&Kári-Handrit.pdf1 MBLokaður til...23.08.2094FylgiskjölPDF
PálaMargrét-Yfirlýsing.pdf227.84 kBLokaðurYfirlýsingPDF