is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Umhverfis- og auðlindafræði >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2634

Titill: 
  • Staðardagskrá 21, sjálfbær samfélagsstefna: Árangursmat 1998-2008
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Rio de Janeiro árið 1992
    undirrituðu þjóðir heims ítarlega framkvæmdaáætlun í umhverfis- og þróunarmálum
    fyrir heimsbyggðina, svokallaða Dagskrá 21 (Agenda 21). Kafli 28 í Dagskrá 21 setti
    þá pólitísku og siðferðislegu skyldu á sveitarfélög að innleiða sjálfbæra þróun í
    samfélagið með gerð svonefndrar Local Agenda 21 – Staðardagskrár 21.
    Á Íslandi hófst formleg vinna við Staðardagskrá 21 árið 1998 með samningi milli
    Umhverfisráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sett var á laggirnar
    fjögurra manna verkefnisstjórn og ráðinn sérstakur verkefnisstjóri yfir verkefnið.
    Í þeirri rannsókn sem hér er kynnt var skoðað hvort Staðardagskrárstarfið á Íslandi
    hefði skilað árangri og var árangursmat byggt á nokkrum rannsóknaraðferðum.
    Spurningalistar voru sendir til úrtaks úr sveitarfélögum, útgefnar
    Staðardagskrárskýrslur voru metnar, viðtöl tekin við kjörna fulltrúa og samanburður
    gerður við kannanir sem lagðar voru fyrir sveitarfélög árin 2000 og 2001.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til árangurs þar sem Staðardagskrá 21 hefur verið
    notuð sem marktækt skjal við stefnumótun og ákvarðanatöku. Aukin umhverfisvitund
    og skilningur er vísbending um árangur, en almennt stendur og fellur árangur af
    Staðardagskrá 21 með skilningi, áhuga og stuðningi sveitarstjórnarmanna.

Samþykkt: 
  • 14.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2634


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
_1_fixed.pdf1 MBLokaðurHeildartextiPDF