is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2635

Titill: 
  • Kauphöll og sjávarútvegur: Eiga þau samleið?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hlutabréfamarkaður og sjávarútvegur eru viðfangsefni þessarar ritgerðar. Á fyrstu
    árum hlutabréfamarkaðar á Íslandi streymdu sjávarútvegsfyrirtækin þangað í stríðum
    straumum en yfirgáfu flest þennan vettvang á mjög stuttum tíma. Markmið
    ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þá atburðarás.
    Tilgangurinn er að kanna hvort þættir í ytra starfsumhverfi gerðu það að verkum að
    þau sáu sér ekki hag í skráningu, eða hvort um innri þætti greinarinnar sjálfrar hafi
    verið að ræða sem gerðu henni ókleift að starfa á þessum vettvangi.
    Í ritgerðinni er fjallað nokkuð ítarlega um valda þætti sem taldir eru hafa áhrif á
    fyrirtæki á hlutabréfamarkaði er tengjast inngöngu, útgöngu og veru þeirra þar. Auk
    þess er íslenskur og erlendur sjávarútvegur skoðaður í samhengi við rannsóknarefnið.
    Rannsóknarsniðin eru annars vegar eigindleg aðferð og hins vegar töluleg greining. Í
    eigindlegu aðferðinni voru tekin viðtöl við sjö manns sem voru þátttakendur í
    atburðarásinni með einum eða öðrum hætti. Tölulegar upplýsingar voru notaðar til
    samanburðar á sjávarútvegi og öðrum atvinnugreinum innan Kauphallarinnar.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að breytt fjármálaumhverfi hafi breytt
    forsendunum fyrir veru fyrirtækjanna inn á markaðnum. Aðrar atvinnugreinar uxu
    meira og bréf þeirra ávöxtuðu sig mikið meira sem gerði samanburðinn við
    sjávarútvegsfyrirtækin afar óhagstæðan. Vísbendingar komu fram um að vanmat á
    sjávarútvegsfyrirtækjunum hafi verið til staðar og stjórnendur fyrirtækjanna hafi séð
    hag sínum betur borgið með afskráningu þeirra. Takmarkanir greinarinnar, bæði
    vegna laga og náttúru, gera hana ekki vel til þess fallna að vera á hlutabréfamarkaði.

Samþykkt: 
  • 14.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2635


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ttir_fixed.pdf606.8 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna