Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26377
Í ritgerðinni er rætt um Fjölnismenn og tímaritið Fjölni sem gefið var út á tímabilinu frá 1835 til 1847. Markmið ritgerðarinnar er að kanna hugsjónir þeirra og einkum áhrif og viðtökur þeirra í íslensku samfélagi. Fyrst kemur umfjöllun um þjóðernisstefnu sem er afleiðing atburða í Evrópu í lok 18. og byrjun 19. aldar. Hluti þessara hugmynda sem hafa þróast í Evrópu er yfirfærður til Íslands og aðlagaður íslenskum aðstæðum af Fjölnismönnum. Fjallað er um stjórnmálaástand á Íslandi um þessar mundir og virkni Fjölnismanna í því samhengi rannsakað. Rætt er um hlutverk Fjölnis við myndun sjálfsmyndar Íslendinga sem að mati Fjölnismanna var mikilvægt lykilatriði í sjálfstæðisbaráttunni. Kynntar eru nokkrar greinar úr Fjölni þar sem hægt er að sjá tilgang tímaritsins og markmið Fjölnismanna. Um viðhorf þeirra til alþingismálsins og ágreininginn við Jón Sigurðsson er fjallað í því skyni að kynna betur virkni þeirra á stjórnmálasviðinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð, Stefan Vucic.pdf | 578.79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlising um meðferð, Stefan Vucic.pdf | 28.83 kB | Lokaður | Yfirlýsing |