Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26435
Skýrsla þessi er hluti af rannsóknarverkefninu SamGETA sem unnið er á Menntavísindasviði og snýst um að kanna sameiginlega getu kennarahópa í skólum til að fást við ný námssvið eins og sjálfbærni, notkun upplýsinga- og samskiptatækni og nýsköpunar- og frumkvöðlamennt.
Formleg vinna að nýsköpunar- og frumkvöðlamennt (NFM) hófst í Grunnskólanum á Hólum með starfi Ritu Didriksen haustið 2006. Til að byrja með var nýsköpunarkennsla eingöngu á Hólum en eftir sameiningu skólanna þriggja var ákveðið að innleiða NFM í sameiginlega nýsköpunarvinnu hóps kennara í starfsstöðinni á Hofsósi. Skólinn fékk til sín sérfræðinga frá Félagi íslenskra kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt og Menntavísindasviði til að halda nokkur námskeið fyrir kennara skólans og stjórnendur um NFM, og hefur fengið ráðgjöf frá þeim í kjölfar námskeiðanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
nyskopunar-_og_frumkvodlamennt_grunnskolinn_austan_vatna.pdf | 741.98 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |