is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26456

Titill: 
  • Samningsbundin vanefndaúrræði. Skuldbindingargildi samkeppnisákvæða í vinnusamningum og þau vanefndaúrræði sem af þeim leiða
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Færst hefur í vöxt síðustu áratugi að setja samkeppnisákvæði í vinnusamninga og samninga um sölu atvinnufyrirtækja en með slíku ákvæði geta atvinnurekendur komið í veg fyrir að starfsmenn sínir fari að vinna fyrir samkeppnisaðila eða stofni sjálfir fyrirtæki í beinni samkeppni við sig. Þannig geta atvinnurekendur tryggt betur hagsmuni sína, sem felast meðal annars í samkeppnishæfni á markaði og viðskiptavild. Almennt gildir samningsfrelsi um vinnusamninga en með því að gangast undir ákvæði um samkeppnisbann eru starfsmenn að afsala sér vissu persónufrelsi og samþykkja skerðingu á öðrum mikilvægum mannréttindum sínum, atvinnufrelsinu, ásamt möguleikanum til að nýta sérstaka reynslu sína og þekkingu í framtíðinni.
    Í þessari ritgerð, sem er lokaverkefni til BA gráðu í lögfræði, verður fjallað um skuldbindingargildi samkeppnisákvæða í vinnusamningum ásamt þeim samningsbundnu vanefndaúrræðum sem af þeim leiða. Í því samhengi verður dómaframkvæmd hérlendis skoðuð en ekki verður farið í erlenda dómaframkvæmd. Fyrst verður þó gerð grein fyrir þeim grundvallarreglum sem hafa verður í huga þegar samkeppnisákvæði eru annars vegar ásamt því að farið verður yfir tilgang samkeppnisákvæða og mikilvægi trúnaðarskyldunnar. Að lokum er hugtakið févíti skoðað, en algengt er að samið sé um févíti samhliða samkeppnisákvæðum.

Samþykkt: 
  • 15.12.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26456


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni. Sandra_Sif.pdf611.13 kBLokaður til...01.01.2100HeildartextiPDF
Yfirlýsing. Sandra.pdf19.21 kBLokaðurYfirlýsingPDF