Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2648
Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort trú á eigin getu til að bæta matar- og hreyfivenjur breyttist á meðan offitumeðferð stóð. Þátttakendur voru 29 einstaklingar í fyrstu dvöl offitumeðferðar á endurhæfingarstofnunum hérlendis. Samstarfsaðilar voru Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað, Kristnesspítali og Reykjalundur. Lagður var fyrir tvískiptur spurningalisti sem kannaði trú einstaklinganna á eigin getu til að breyta annars vegar matar- og hins vegar hreyfivenjum til lengri tíma. Spurningalistinn var lagður tvisvar fyrir, í upphafi dvalar og aftur í lok dvalar 5 vikum síðar.
Niðurstöður leiddu í ljós að meðaltalsútkoma úr spurningalistanum var 78% í upphafi en 87% í lok dvalar og reyndist það vera marktæk breyting. Einnig komu fram marktækar breytingar þegar hreyfingarhlutinn og matarvenjuhlutinn voru skoðaðir hvor fyrir sig.
Niðurstöður rannsóknarinnar studdu megintilgátu okkar; að trú á eigin getu aukist eftir því sem líður á offitumeðferð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
endurhaefingarstofnunum_fixed.pdf | 951.12 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |