is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2648

Titill: 
  • Breyting á trú einstaklinga á eigin getu í meðferð vegna offitu á endurhæfingarstofnunum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort trú á eigin getu til að bæta matar- og hreyfivenjur breyttist á meðan offitumeðferð stóð. Þátttakendur voru 29 einstaklingar í fyrstu dvöl offitumeðferðar á endurhæfingarstofnunum hérlendis. Samstarfsaðilar voru Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað, Kristnesspítali og Reykjalundur. Lagður var fyrir tvískiptur spurningalisti sem kannaði trú einstaklinganna á eigin getu til að breyta annars vegar matar- og hins vegar hreyfivenjum til lengri tíma. Spurningalistinn var lagður tvisvar fyrir, í upphafi dvalar og aftur í lok dvalar 5 vikum síðar.
    Niðurstöður leiddu í ljós að meðaltalsútkoma úr spurningalistanum var 78% í upphafi en 87% í lok dvalar og reyndist það vera marktæk breyting. Einnig komu fram marktækar breytingar þegar hreyfingarhlutinn og matarvenjuhlutinn voru skoðaðir hvor fyrir sig.
    Niðurstöður rannsóknarinnar studdu megintilgátu okkar; að trú á eigin getu aukist eftir því sem líður á offitumeðferð.

Samþykkt: 
  • 15.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2648


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
endurhaefingarstofnunum_fixed.pdf951.12 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna