Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26641
Þessi ritgerð er unnin til BA – prófs í listfræði við Háskóla Íslands. Hún fjallar um birtingamynd konunnar í list Sigurjóns Ólafssonar, en jafnframt því er reynt að sýna fram á þá virðingu sem listamaðurinn bar til kvenna. Stuðst verður við þær standmyndir sem voru á sýningunni Gyðjur sem sett var upp í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar haustið 2015 og stóð fram á vordaga 2016. Verkin sem um er að ræða eru unnin á árunum 1934 – 1982 og sýna ólík tímabil í lífi listamannsins þar sem hann notar mismunandi efnivið og beitir ólíkum vinnuaðferðum.
Komið er inn á ríkjandi strauma og stefnur sem óneitanlega höfðu áhrif á uppbyggingu listaverkanna ásamt ýmsum umhverfisþáttum úr hinu daglega lífi. Störf hinna vinnandi stétta voru Sigurjóni alltaf hugleikin og endurspeglast sá áhugi víða í verkum hans, bæði ljóst og leynt. Útfærsla hans á gyðjunni er mótuð í þeim ólíku formum sem hún birtist okkur í daglegu lífi og verður það fyrst og fremst skoðað í gegnum túlkun, hugsun og myndbirtingu listamannsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Flóra Guðlaugsdóttir.pdf | 1.67 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
anonym628_doc02764720170119144006.pdf | 297.9 kB | Lokaður | Yfirlýsing |