is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2665

Titill: 
  • Þrenna íþróttakonunnar: Er lág beinþéttni hjá íþróttakonum, sem þjáðst hafa tímabundið af átröskunum og tíðaóreglu, afturkræf?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þrenna íþróttakonunnar felur í sér innbyrðis tengsl átraskana, tíðaóreglu og minnkaðrar beinþéttni. Aðalmarkmið ritgerðarinnar er að skoða og taka saman þær rannsóknir sem gerðar hafa verið um langtímaáhrif þrennu íþróttakonunnar á beinþéttni, hvort það beintap sem verður í kjölfarið sé afturkræft eða óafturkræft og hvort þau meðferðarúrræði sem notuð eru séu að skila tilætluðum árangri. Þar að auki er markmið þessarar ritgerðar að greina frá helstu einkennum og áhættuþáttum þrennunnar og hlut sjúkraþjálfara í meðhöndlun, greiningu og forvörnum. Fleiri rannsóknir á langtímaáhrifum þrennu íþróttakonunnar á beinþéttni eru nauðsynlegar og þrátt fyrir aukið umtal á seinustu 10-15 árum er ennþá margt sem á eftir að rannsaka. Nýlegar rannsóknir gefa tilefni til bjartsýni á að með endurheimt eðlilegra tíða og þyngdaraukningu komist beinþéttni íþróttakonunnar nálægt eðlilegum viðmiðum kyrrsetukvenna. Hlutverk sjúkraþjálfara í meðferð þrennu íþróttakonunnar er ekki búið að skilgreina nákvæmlega en mikilvægt er að sjúkraþjálfarar haldi sér vel upplýstum og séu leiðandi í forvörnum og fræðslu um einkenni þrennunnar.

Samþykkt: 
  • 15.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2665


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
loka_fixed.pdf781.55 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna