Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26676
Verkefnið byggist á því að hanna og teikna staðsteypt einbýlishús með nýtilegri rishæð ásamt stakstæðum bílskúr úr timbri með flötu
þaki. Miðhús 50 í Rvk. var haft til hliðsjónar varðandi staðsetningu og stærð.
Teiknisett verkefnis samanstendur af aðal-, byggingar-, burðarvirkis-, deili- og lagnauppdráttum, ásamt uppdráttaskrá og skráningartöflu húss og bílskúrs.
Skýrsla verkefnis greinir frá verklýsingum á þeim liðum sem framkvæma þarf við reisingu mannvirkisins ásamt kostnaðar- og framkvæmdaáætlun, burðarþols-, varmataps-, lagna-, þakrennu- og þakloftunarútreikningum.
Umsókn um byggingarleyfi var fyllt út ásamt gátlista frá byggingarfulltrúanum í Reykjavík.
Verkefnið er unnið í samræmi við Byggingarreglugerð 112/2012 og lög nr.
160/2010, Lög um mannvirki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Miðhús 50 - Skýrsla.pdf | 3.29 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Miðhús 50 - Teiknisett.pdf | 62.57 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |