Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26733
Víravirki eins og við þekkjum það í dag er ekki eingöngu íslenskt fyrirbæri en íslenska víravirkið hefur þó sín sérkenni eins og lítil hjartalöguð lauf og trommulagaða hnappa. Víravirkið er næstum því eingöngu í formi skartgripa og kvensilfurs með örfáum undartekningum. Ólíkt öðrum löndum þar sem margskonar hlutir eru gerðir úr víravirki eins og styttur og skartgripaskrín. Hér má finna ýtarlegar lýsingar á framleiðsluaðferðum á mismunandi vírum og á víravirkissmíði á mismunandi tímum. Einnig er fjallað um þróun stíls og tísku í víravirki frá því fyrir landnám og til dagsins í dag. Skoðaðar eru ritaðar heimildir og fornleifrannsóknir um eign íslendinga á víravirki í gegnum aldirnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Íslenskt víravirki. Í víðara samhengi..pdf | 3.24 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
DSC_1042.JPG | 631.98 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |