Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2675
Að eignast barn á náttúrulegan hátt er ekki sjálfgefið. Það er ávallt eitthvað hlutfall fólks á barneignaraldri sem glímir við ófrjósemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Til eru margar orsakir ófrjósemi og til eru nokkrar úrlausnir til þess að sigrast á þeim vanda. En því miður gagnast þær úrlausnir, sem eru löglegar og í boði hér á landi, ekki allar ófrjóum pörum. Kynntir verða þeir möguleikar sem í boði eru við ófrjósemi hér á landi og einnig verður kynnt staðgöngumæðrun sem úrlausn við ófrjósemi sem og hvernig lög og reglur geta verið mismunandi milli landa þegar kemur að staðgöngumæðrun. Stuðst verður við skrif fræðimanna um þessi málefni og kynntar verða niðurstöður úr nýlegum breskum rannsóknum á staðgöngumæðrun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_fixed.pdf | 257.83 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |