Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26834
Í ritgerð þessari er kannað og greint hver eru helstu lykilatriði eru teymisvinnu hjá
Icelandair Hotels. Skoðuð verða helstu hugtökin forysta, hvatning og teymi. Höfundur
notast við afleiddar heimildir og ýmsar kenningar fræðimanna til stuðnings. Einnig
styðst höfundur við upplýsingar og sjónarmið fagaðila hjá skipulagsheild. Þar með er
eigindlegri rannsóknaraðferð beitt þar sem tekin eru djúpviðtöl við þrjá einstaklinga
sem starfa í sömu starfsgrein.
Það sem felst í hugtakinu forysta er að það hefur tiltekin áhrif á aðra einstaklinga eða
hópa til þess að auka trú, sjálfstraust og ná vissum markmiðum. Hvatning felur í sér til
dæmis að hvetja, leiðbeina og veita stuðning. Teymi er hópur af einstaklingum sem nær
framúrskarandi árangri vegna þess að fyrirkomulag samstarfs er byggt á annan hátt en
hjá þeim sem starfa sem hópur. Þar með er hægt að sjá hver tengslin eru á milli þessara
þriggja hugtaka, forysta, hvatning og teymi. Sá sem er í forystu notast í raun við þann
eiginleika að hvetja einstaklinga í tilteknum hópi áfram og þar af leiðandi myndast
tiltekið teymi.
Niðurstöður þessarar rannsóknar eru þær að lykilþáttur í teymisvinnu eru samskipti.
Fyrirtækið notast við margvíslegar samskiptaleiðir og ýmis konar hvatakerfi til að
mynda þjálfun, námskeið og menntun eru í boði fyrir starfsfólk þeim að kostnaðarlausu.
Þar af leiðandi eflist þekking og hæfni starfsfólks Icelandair Hotels sem nýtist þeim í
starfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
DisaMaiThiJosepsdottir_BS_lokaverk.pdf | 1.3 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_Disa_Mai_Thi_Josepsdottir.pdf | 23.72 kB | Lokaður | Fylgiskjöl |