Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26913
Greinargerð þessi er skrifuð út frá fræðilega hluta verkefnahefta sem ætluð eru foreldrum elstu barna á leikskóla. Heftin útbjuggum við með það í huga að auðvelda foreldrum að vinna með barni sem hefur hlotið slaka niðurstöðu úr einhverjum af þeim sjö þáttum sem prófaðir eru í HLJÓM-2 við lok leikskólagöngu. Hugmyndina fengum við eftir að hafa gert rannsókn í aðferðafræði sem sneri að því að athuga hvort grunnskólakennarar í tilteknum skóla á Suðurnesjum ynnu markvisst með niðurstöður HLJÓM-2 prófanna. Einnig tókum við stutt viðtöl við foreldra til að athuga þekkingu þeirra á gildi HLJÓM-2. Komumst við að því að ekki var unnið með nemendur út frá niðurstöðum úr HLJÓM-2 að öðru leiti en því að þær voru notaðar til þess að hafa jafna getuskiptingu í bekkjum. Í viðtölum við foreldra kom í ljós að langflestir gerðu sér ekki grein fyrir hvað HLJÓM-2 er eða hvað forspárgildi niðurstaðna hefur á námsárangur nemenda síðar á grunnskólagöngunni. Niðurstöður þessarar rannsóknar kveiktu hjá okkar áhuga á að útbúa hefti sem auðvelda foreldrum að vinna með barni sínu og er markmiðið að hafa þau einföld og á máli sem er ekki of fræðilegt. Vonumst við til þess að foreldrar geti nýtt sér heftin við að aðstoða barnið við að ná upp betri færni í þeim þáttum sem komu slakir út hjá þeim í HLJÓM-2.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RÍM-1 (1).pdf | 1.08 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
LOKAVERKEFNI-PDFSKJAL.pdf | 778.49 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
HLJÓÐGREINING-1.pdf | 976.44 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
HLJÓÐTENGING-1.pdf | 1.01 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
MARGRÆÐ-ORÐ-1.pdf | 606.03 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
ORÐHLUTAEYÐING-1.pdf | 964.58 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
SAMSETT-ORÐ-1.pdf | 1.06 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
SAMSTÖFUR-1.pdf | 1.28 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
yfirlýsing-Sigurros-Teresa.pdf | 255.85 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
LOKAVERKEFNI-PDFSKJAL.pdf | 778.49 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
RÍM-1 (1).pdf | 1.08 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
SAMSTÖFUR-1.pdf | 1.28 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
SAMSETT-ORÐ-1.pdf | 1.06 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
HLJÓÐGREINING-1.pdf | 976.44 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
MARGRÆÐ-ORÐ-1.pdf | 606.03 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
ORÐHLUTAEYÐING-1.pdf | 964.58 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
HLJÓÐTENGING-1.pdf | 1.01 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
yfirlýsing-Sigurros-Teresa.pdf | 255.85 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |