is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26941

Titill: 
  • Þýðing og gildi búfræðinámsins á Hvanneyri : væntingar, kröfur og reynsla fyrrverandi nemenda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn er meistaraprófsverkefni til M.Ed prófs í menntunarfræði við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Markmið verkefnisins var að kanna hverjar voru væntingar nemenda við bændadeild Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) áður en þeir komu til búfræðinámsins, ásamt því að rannsaka hvort námið hafi staðist væntingar þeirra og hvernig það nýttist í atvinnulífinu. Við gerð verkefnisins voru hafðar til hliðsjónar hugmyndir Dewey um reynslumiðað nám (e. learning by doing). Kenningar hans ganga út á að reynsla þurfi að mynda samfellu eða tengsl við fyrri reynslu og verkefni til þess að nám eða menntun geti átt sér stað.
    Spurningalisti var sendur út rafrænt á útskrifaða nemendur LbhÍ og lögð sérstök áhersla á að ná til útskriftarárganga síðustu tíu ára (2005-2015). Könnunin var send á alls 271 einstakling og 151 svaraði, sem er 56% svarhlutfall.
    Niðurstöður könnunarinnar voru unnar í tölfræðiforritinu SPSS 7.5 sem hentar vel til úrvinnslu gagna úr könnunum. Þegar niðurstöðurnar voru skoðaðar mátti sjá að þeim nemendum sem höfðu einhverja reynslu áður en komið var til náms við LbhÍ fannst skilningur sinn á efninu dýpka. Voru yfir 90% nemenda sem fannst þeir læra frekar mikið eða mikið á náminu. Það sem helst þótti vanta upp á námið var frekari verkleg kennsla með betri tengingu á milli bóklegra og verklegra þátta. Einnig kom fram ákall eftir endurnýjuðu námsefni, sem þótti úrelt, og ekki síst gagnrýni á kennsluna sjálfa og kennsluhætti kennara.

  • Útdráttur er á ensku

    This study is a final assignment for a M.Ed degree in Education from the University of Akureyri. This particular project aimed to explore the expectations of students regarding the program before commencing studies at the farmer's department of the Agricultural University of Iceland (AUI), as well as their overall satisfaction with the provided education and the infrastructure associated with the vocational program. Optimism regarding success in related careers upon graduation was quantified as well.
    A questionnaire was sent out electronically to graduates of AUI with particular emphasis on reaching students from the past 10 years (2005-2015). Of the total 271 people, 151 participants answered, equaling a 56% response rate.
    SPSS 7.5 was used for statistic calculations. The results showed that, overall, students with some or considerable real world experience upon entering the program felt a deepening in their understanding of the subject to some or to a great extent. According to them, the main benefits of the program are the networks therein formed. The results also showed that while there are both overall broad agreement and satisfaction with the program there is also a call for further practical training, a better connection between the theoretical and practical aspects of the program, the revision of the curriculum, eliminating some redundancies within and especially criticism of teachers and teaching methods.

Samþykkt: 
  • 21.3.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26941


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BirtaBergSigurðardóttir_MPR0230_kennaradeildHA_H2016.pdf1.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna