Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/27470
Höfundur tók eigindleg viðtöl við níu einstaklinga sem höfðu upplifun á einelti sem þolandi, gerandi eða áhorfandi í grunnskóla fyrir meira en 5-20 árum síðan. Meginþemu viðtala voru ástæður, þöggun, afleiðingar, inngrip og úrvinnsla auk nokkurra undirþema. Viðmælendur urðu fyrir langvarandi einelti sem stóð yfir mest allan grunnskólann og jafnvel fram í framhaldsskóla. Þeir fengu meðal annars að heyra niðrandi ummæli um sig, þeir fundu fyrir afskipta- og úrræðaleysi þar sem inngrip og fræðsla á einelti var lítil sem engin og tilraunir voru gerðar til sjálfsskaða hjá mörgum. Reynslan hefur þó kennt þeim hvernig þeir koma fram við aðra og þeir munu leiðbeina og fræða börnin sín um einelti og skaðsemi þess. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu meðal annars að vitundarvakning á einelti þarf að fara fram með aukinni fræðslu og stuðningi fyrir alla. Fræðsla ætti að byrja strax í leikskóla og kenna ætti börnum að sýna umburðarlyndi og bera virðingu fyrir öðrum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
snidmat_ba_ritgerd_2017_NOTA.pdf | 1.22 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 2.08 MB | Lokaður | Yfirlýsing |