is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2771

Titill: 
  • Mótorhjólaslys á Íslandi á árunum 2003 til 2007
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tíðni alvarlegra mótorhjólaslysa á Íslandi hefur aukist á undanförnum árum. Mótorhjólafólk er berskjaldaðra í umferðinni en ökumenn annarra ökutækja og því hlýtur það oftar alvarlegri áverka í slysum.
    Rannsókninni var beint að tíðni og alvarleika mótorhjólaslysa á Íslandi frá upphafi ársins 2003 til ársloka 2007. Markmið hennar var að auka þekkingu og hvetja til aukinnar áherslu á fræðslu og forvarnir.
    Notuð var afturvirk lýsandi aðferðafræði og gögnum safnað úr sjúkraskrám Landspítalans og slysaskýrslum Umferðarstofu og Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Þátttakendur voru allir þeir sem lent höfðu í mótorhjólaslysum á árunum 2003-2007.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að alls urðu 842 mótorhjólaslys á rannsóknartímabilinu og að 240% aukning varð á slysatíðni frá árinu 2003 til ársins 2007, en það jafngildir um það bil þreföldun á einungis fimm ára tímabili. Í kjölfar mótorhjólaslysa komu 777 einstaklingar á slysadeild Landspítalans og þurftu 105 þeirra að leggjast inn. Alvarlegir áverkar eftir mótorhjólaslys hafa aukist mikið og eru þeir einkum á höfði, brjóstholi og kviði en þeir algengustu á útlimum. Níu einstaklingar létu lífið vegna mótorhjólaslysa á rannsóknartímabilinu.
    Í ljósi mikillar aukningar á mótorhjólaslysum er mikilvægt að mótorhjólafólk og aðrir vegfarendur séu upplýstir um aðsteðjandi hættur í umferðinni. Einnig er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk þekki helstu orsakir og afleiðingar mótorhjólaslysa til þess að þjónustan geti orðið eins og best verður á kosið.

Samþykkt: 
  • 22.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2771


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
2007_fixed.pdf2.56 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna