Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2775
Viðfangsefni rannsóknarinnar er konur, kristni og kristin trúarrit á 19. öld. Könnuð eru áhrif trúarrita á sjálfsmynd kvenna og hugmyndir um hlutverk þeirra. Skoðaðar eru helstu leiðir kirkjunnar við útbreiðslu trúarlegs boðskapar. Snert er á hugmyndum kvenna og karla um að konur færðu sig inn á opinbert svið karlmanna. Athugað er hvort kristin trú og textar höfðu þjakandi áhrif á konur eða hvort þær fundu huggun í þeim. Hugmyndir um hlutverk kynjanna hélst svo til óbreytt í íslenska sveitasamfélaginu allt fram til loka 19. aldar og jafnvel lengur. Hlutverk kvenna miðaði að móður-, eiginkonu- og húsfreyjuhlutverki. Trúin gegndi tvíbentu hlutverki í lífi kvenna, annars vegar stuðlaði boðskapur trúarinnar og trúarlegra rita að bælingu kvenna. Á hinn bóginn fundu konur styrk í trúnni við erfiðar aðstæður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ris_fixed.pdf | 301.09 kB | Lokaður | Heildartexti |