is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2781

Titill: 
  • Tákn og samskipti við umönnunaraðila á fyrsta aldursári og hlutverk hjúkrunar: Fræðilegt yfirlit
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tákn ungbarna eru margþætt. Getur það verið mis erfitt fyrir foreldra að skilja þessi tákn.
    Börn gefa frá sér tákn sem eru meðfædd. Þessi tákn þekkja foreldrar best sem grát, leiða, bros eða ljóma yfir andlitinu. Táknunum er skipt í tvennt eftir því hvort barnið er að gefa frá sér veik eða sterk tákn. Þegar að umönnunaraðilum gengur vel að skilja tákn barna sinna verða samskipti þeirra góð sem stuðlar að viðunandi þroska og mótun fyrir framtíðina. Ef umönnunaraðilum og ungbarni gengur illa að skilja hvort annað þá getur það valdið skaða í félagslegum, vitsmunalegum og andlegum þroska hjá barninu. Hjúkrunarfræðingar sem þekkja tákn barna geta hjálpað umönnunaraðilum við að þekkja þau og hvernig eigi að bregðast við þeim þannig að samskiptin þeirra á milli verði sem best. Með þessari nálgun hjúkrunarfræðinga er hægt að stuðla að betri þroska barna og betri velgengni í skóla í framtíðinni.

Samþykkt: 
  • 25.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2781


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed.pdf24.52 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
BskapaHugborgKjoll.pdf6.06 MBOpinnKápa ritgerðarPDFSkoða/Opna