is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2807

Titill: 
  • Fræðsluþarfir unglinga um klám
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar ritgerðar var að skoða hvaða áhrif klám hefur á unglinga og hvernig fjallað er um klám í námsefni kynfræðslunnar fyrir þennan aldurshóp í grunnskólum á Íslandi.
    Rannsóknir sýna að unglingar horfa á klám í miklum mæli og leita í klámefni til að fræðast um kynlíf. Internetið á stóran þátt í aðgengi unglinga að klámi. Klám sýnir ekki tilfinningar eða nánd í kynferðislegu sambandi. Komið hefur í ljós að áhorf kláms í miklum mæli getur haft neikvæðar afleiðingar á kynhegðun unglinga. Þeir byrja fyrr að stunda kynlíf, eru ólíklegri að nota getnaðarvarnir við kynmök og líklegri til að eiga marga rekkjunauta.
    Lítið er fjallað um klám í kynfræðslu á Íslandi og erfitt er að finna fræðsluefni frá öðrum löndum. Nauðsynlegt er að veita unglingum fræðslu um klám innan kynfræðslu í skólum. Einnig að fræða þá um þær heimasíður sem veita góða kynfræðslu og kenna þeim að þekkja viðurkenndar síður.

Samþykkt: 
  • 26.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2807


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fraedslutharfir unglinga um klam_fixed.pdf305.81 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna