is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28235

Titill: 
  • Fjárhagsleg sjálfbærni sveitarfélaga : hversu sterk eða veik er fjárhagsstaða sveitarfélaga og hvaða þættir skipta þar mestu máli?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi fjallar um fjárhag og fjárhagslega sjálfbærni sveitarfélaga. Til að rannsaka það er nauðsynlegt að ákvarða hvaða kennitölur og hlutföll segja til um fjárhagslega sjálfbærni sveitarfélaga. Þekkingu á málefninu var aflað með heimildavinnu, djúpviðtölum og spurningalista. Allir þátttakendur spurningalistans voru tengdir fjármálum síns sveitarfélags. Í framhaldi af því þurfti að búa til líkan með helstu atriðum í þeim tilgangi að meta sveitarfélögin á sameiginlegum grundvelli. Líkanið veitti upplýsingar um hversu fjárhagslega sjálfbært eða ósjálfbært hvert og eitt sveitarfélag er miðað við heildina, ásamt því að veita samanburð á fjárhagslegum upplýsingum sveitarfélaganna.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar veittu upplýsingar um hversu fjárhagslega sjálfbært hvert og eitt sveitarfélag er í samanburði við önnur sveitarfélög. Líkanið er þar af leiðandi fjárhagslegur leiðarvísir fyrir sveitarstjórnir í sveitarfélögum til viðmiðunar um mat á eigin stöðu.

Samþykkt: 
  • 13.6.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/28235


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fjárhagsleg sjálfbærni sveitarfélaga.pdf1.09 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna