is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2832

Titill: 
  • Um málsmeðferð stjórnsýslunefnda og fordæmisgildi úrlausna þeirra
Titill: 
  • Administrative committee proceedings and the precedential value of their rulings
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Með þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á þær málsmeðferðarreglur sem gilda fyrir
    sjálfstæðum stjórnsýslunefndum, annars vegar fyrir úrskurðarnefndum og hins vegar fyrir
    álitsgefandi nefndum, ásamt því að athuga fordæmisgildi ákvarðana innan stjórnsýslunnar.
    Mikilvægt er að málsmeðferðarreglur séu skýrar og aðgengilegar, hvort heldur sem er fyrir
    hinn almenna borgara eða stjórnvöld. Stjórnsýslulögin eru lágmarksreglur sem gilda meðal
    annars um málsmeðferð úrskurðarnefnda en ákvarðanir álitsgefandi nefnda falla ekki undir
    þau. Sérlög og reglugerðir um málsmeðferð úrskurðarnefnda ganga framar hinum almennu
    ákvæðum stjórnsýslulaga en allur gangur er á hversu ítarleg þau ákvæði eru. Þar sem
    málsmeðferð álitsgefandi nefnda fellur ekki innan ákvæða stjórnsýslulaga er mikið vafamál
    um hvaða reglum þær skulu lúta varðandi málsmeðferð. Skiptar skoðanir eru á því hvort
    ákvæði stjórnsýslulaga eigi að gilda og hafa dómstólar og umboðsmaður Alþingis fjallað um
    málið með ólíkum niðurstöðum. Fordæmisgildi ákvarðana innan stjórnsýslunnar styrkjast eftir
    því sem reglur um málsmeðferð og kröfur um sérþekkingu eru ítarlegri og einnig hefur birting
    sitt að segja um fordæmisgildið. Stjórnvöld leitast því við að fylgja jafnræði og samræmi í
    störfum sínum. Brýn þörf er á samræmingu og skýrleika í málsmeðferðarreglum fyrir
    sjálfstæðum stjórnsýslunefndum til að gæta að réttaröryggi borgaranna.

Samþykkt: 
  • 27.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2832


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSritgerd_SteinunnBirna_vor2009_fixed.pdf450.5 kBOpinnPDFSkoða/Opna