Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2839
Mikið hefur verið rætt um afplánun og refsingar í kjölfar ýmissa glæpa sem hafa verið framdir hér á landi og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Það sem vakti áhuga höfundar á efni sem þessu er að almenningur virðist vera mjög dómharður og refsiglaður án þess að hugsa um afleiðingar þess Höfundur fékk leyfi Fangelsisyfirvalda og ákvað að heimsækja fanga í fangelsi og ræða við nokkra þeirra. Fangar sem var rætt við töluðu um að íslensks löggjöf um fullnustu refsinga og fangelsismál væri langt á eftir öllum öðrum þjóðum og þá einna helst Danmörku. Þar sem Íslendingar hafa gjarnan borið sig saman við Dani í gegnum tíðina fannst höfundi það skemmtileg áskorun að kanna hvort ísland væri svo langt á eftir Danmörku í refsi og fullnustumálum
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSritgerd_Unnur_vor2009_fixed.pdf | 620.91 kB | Opinn | Skoða/Opna |