is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/286

Titill: 
  • Downs-heilkenni : viðbrögð foreldra við að eignast barn með Downs-heilkenni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefni þetta fjallar um foreldra sem eiga börn með Downs-heilkenni. Það var leitað svara við spurningum: Hvernig er að eignast barn með Downs-heilkenni? Hvernig er foreldrum sagt frá því að barnið þeirra sé með Downs-heilkenni? Hvernig tekur þjóðfélagið á móti fötluðum einstaklingum? Hvernig taka nánustu fjölskyldu meðlimir og vinir fæðingu fatlaða barnsins?
    Verkefnið skiptist í þrjá meginhluta. Í fræðilegum kafla er fjallað um einkenni Downs-heilkenni og ólíka þroskaþætti. Downs-heilkennni er litningagalli þar sem í flestum tilfellum er auka 21. litningur. Helstu einkenni barna með Downs-heilkenni eru líkamsslappleiki við fæðingu, skásett augu, stór tunga, flatur hnakki, styttri fingur og tær. Könnun var gerð meðal foreldra sem eignast hafa börn með
    Downs-heilkenni. Helstu niðurstöður sýndu að foreldrar reyna að lifa heilbrigðu lífi með börnunum sínum og gleðjast með þeim. Hjá flestum eru nánustu ættingjar og vinir hjálplegir foreldrunum. Þær upplýsingar sem foreldrar fá eru ekki nógu skýrar og misjafnt hvernig foreldrum er tilkynnt að barnið sé með Downs-heilkenni. Þjóðfélagið virðist vera í góðri þróun og tekst á við fatlaða einstaklinga og þeir eru vel sjáanlegir í dag en ekki faldir inni á stofnunum eins og var. Ör þróun er á að fatlaðir einstaklingar komist út á almennan vinnumarkað með aðstoð vaxandi samfélags. Að lokum fer fram umræða út frá niðurstöðum könnunarinnar og í ljósi markmiðanna. Fræðin eru tengd við umræðuna og ályktun dregin út frá þeim.

Samþykkt: 
  • 1.1.2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/286


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
downs.pdf240.87 kBOpinnDowns-heilkenni - heildPDFSkoða/Opna
downs_e.pdf48.87 kBOpinnDowns-heilkenni - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
downs_h.pdf101.98 kBOpinnDowns-heilkenni - heimildaskráPDFSkoða/Opna
downs_u.pdf51.48 kBOpinnDowns-heilkenni - útdrátturPDFSkoða/Opna