is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2923

Titill: 
  • Viðmið fyrir íslenska gerð Mattis heilabilunarkvarðans (MDRS-2)
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Niðurstöður: Þessarar rannsóknar sýna fyrstu viðmið fyrir íslenska gerð heilabilunarkvarðans MDRS-2, eða Mattis prófið. Heilabilun er vaxandi samfélagslegt vandamál sökum hækkandi
    aldurs Íslendinga og eru hrörnunarsjúkdómar s.s. Alzheimers og heilaæðasjúkdómar
    algengustu orsakavaldarnir. Aukin krafa um gæði taugasálfræðilegra greininga kallar á bætt
    greiningartæki og viðmið. MDRS-2 kvarðinn hefur áður hefur verið þýddur og forprófaður í
    íslensku þýði 65 ára og eldri en íslensk viðmið hefur skort. Úrtakið samanstendur af alls 137
    Íslendingum 65 ára og eldri og fóru prófanir fram á fjórum stöðum á landinu. Viðmið eru
    reiknuð út frá aldri og menntun og var notast við fjölbreytu dreifigreiningu við tölfræðilega
    úrlausn. Fylgni var einnig reiknuð á milli MMSE og 3MS skimunarprófana og
    heildarniðurstöðu MDRS-2 og undirkvarða þess. Niðurstöður eru að meðalútkoma á prófinu
    er 130,3 með staðalfrávikið 8,5 (spönn 106-130 stig). Heildarniðurstaða MDRS-2 hefur
    marktæka fylgni bæði við MMSE og 3MS sem og allir undirkvarðar þess nema teikning
    flatarmynda.

Styrktaraðili: 
  • Landspítali Háskólasjúkrahús
Samþykkt: 
  • 2.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2923


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
2009_fixed.pdf631.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna